Þekkt er að kalk í kransæðum veldur truflunum í tölvusneiðmyndarannsókn (TS) sem torveldar mat á kransæðaþrengslum. Markmið rannsóknarinnar var að meta nánar áhrif kalks í kransæðum á greiningargildi 64 sneiða TS á kransæðum í íslensku þýði, með hjartaþræðingu sem viðmið.udÞessi afturskyggna rannsókn náði til 417 einstaklinga sem bæði höfðu komið í TS-kransæðarannsókn og hjartaþræðingu með 6 mánaða millibili. Einstaklingum var skipt eftir Agatston-skori (kalkmagn í kransæðum): [0], [0,1-10], [10,1-100], [100,1-400], [400,1-750] og [>750]. Hæfni TS-kransæðarannsóknar til að greina ≥50% kransæðaþrengingu var metin með hjartaþræðingu sem viðmið. Þá voru tengsl á milli Agatston-skors og ≥50% kransæðaþrengingar skoðuð.udAlls voru rannsökuð 1668 kransæðasvæði í 417 einstaklingum (68,6% karlar og meðalaldur 60,2 ± 8,9 ár). Agatston-skor var að meðaltali 420 (spönn frá 0-4275). Næmi tölvusneiðmyndarannsóknar við greiningu ≥50% kransæðaþrengingar í kransæð var 70,1%, sértæki 79,9%, jákvætt forspárgildi 55,4% og neikvætt forspárgildi 88,2%. Neikvætt forspárgildi lækkaði úr 93,0% fyrir Agatston-skor núll og niður í 78,3% fyrir Agatston-skor ˃>750. Agatston-skor 363 spáði best fyrir um ≥50% kransæðaþrengingu með 49,6% næmi.udGreiningargildi TS-kransæðarannsóknar er almennt gott með háu neikvæðu forspárgildi og sértæki. Kalk hefur töluverð áhrif á greiningargildið en neikvætt forspárgildi skerðist lítið fyrir Agatston-skor allt að 400. Agatston-skor er ekki gott til að spá fyrir um ≥50% kransæðaþrengingu í þessu þýði. Ekkert ákveðið Agatston-skor gildi fannst sem spáði fyrir um ónothæfa æðarannsókn með TS.
展开▼